|
|
Þú ert hér: Forsíða Uppskriftir Yfirlit uppskrifta
HvítlaukskjúklingurHráefni: 1 stór kjúklingur 3 msk jómfrúarolía 1 tsk salt ½ tsk pipar 2 greinar steinselja 1 grein rósmarín 1 grein timjan 1 lárviðarlauf 40 hvítlauksgeirar, ekki afhýddir 2 sellerístilkar, saxaðir 1½ dl hvítvín Leiðbeiningar:
Hitið ofninn í 180 °C. Blandið saman rósmaríni, timjan, steinselju og lárviðarlaufi og setjið inn í kjúklinginn. Penslið kjúklinginn með einni msk. af olíu og kryddið með salti og pipar og bindið leggina saman. Hvítlaukur og sellerí sett í eldfast mót og kjúklingurinn lagður ofan á, hvítvíni hellt yfir. Lokað með álpappír og bakað í 1½ klukkustund. Takið kjúklinginn úr fatinu og látið standa í 10 mínútur. Hellið safanum yfir fuglinn. Berið fram nýbakað snittubrauð með kjúklingnum.
|
|
|
|
|