Uppskriftasafn Nóatúns
Þú ert hér: Forsíða arrow Uppskriftir arrow Yfirlit uppskrifta
RÁÐ: Þú getur slegið inn eitthvert leitarorð
(heiti, hráefni, tegund)

Lambafillet með sveppasósu og beikonkartöflum

Hráefni:

4 x 200 g lambafillet með fitu
sjávarsalt og nýmalaður pipar
2 dl rabarbarasulta
4 tsk lambakrydd

Beikonkartöflur
8 stórar kartöflur (ekki bökunar)
8 sneiðar beikon
8 litlar greinar af rósmarín
10 g smjör
jómfrúarolía
sjávarsalt og nýmalaður pipar

Sveppasósa
250 g sveppir, skornir
250 ml rjómi
250 ml hvítvín
1 dl sætt sérrí
kjötkraftur
sjávarsalt og nýmalaður pipar
smjörklípa

 

Leiðbeiningar:

Brúnið kjötið á heitri pönnu, fyrst á fituhliðinni, kryddið með salti og pipar og setjið í eldfast mót. Blandið saman kryddinu og sultunni og smyrjið blöndunni á kjötið. Bakið í 180 °C heitum ofni í 15 mínútur. Takið þá út og látið standa í 5 mínútur.
Afhýðið kartöflurnar og skerið sneið af öðrum endanum svo kartaflan standi. Notið skeið eða kúlara til að skafa innan úr kartöflunni hálfa leið. Rúllið saman einni beikonsneið og smá rósmaríni og setjið í hverja kartöflu. Bræðið smjörið og hellið því ofan á kartöflurnar. Kryddið með salti og pipar og dreypið nokkrum dropum af jómfrúarolíu yfir. Bakið í ofni við 180 °C í 40–50 mínútur.
Bræðið smjörið á pönnu og steikið sveppina. Kryddið með salti og pipar. Hellið því næst rjómanum og hvítvíninu út á og sjóðið niður um 10%. Kryddið með kjötkrafti. Bætið þá sérríi við og smakkið til og þykkið ef þarf.

_garyscookbook_PRINTPrenta uppskriftBackForward deila