|
|
Þú ert hér: Forsíða Uppskriftir Yfirlit uppskrifta
Creme brulée með kókos og engiferHráefni: 500 ml rjómi 20 g rifinn kókos 3 tsk ferskt engifer, rifið 4 eggjarauður 55 g sykur 2 msk hrásykur Leiðbeiningar:
Hitið ofninn í 160 °C. Setjið rjóma, kókos og engifer í pott og hitið upp að suðu, sigtið yfir í skál og hendið kókosnum og engiferinu. Þeytið saman eggjarauður og sykur í 5 mínútur yfir vatnsbaði, blandið svo rjómanum rólega út í og hrærið í yfir vatnsbaðinu í 10 mínútur. Hellið blöndunni í 4 suffleform sem taka 125 ml hvert. Raðið formunum í bakka og hellið sjóðandi vatni í bakkann þannig að það nái ¾ upp með mótunum. Bakið í 20–25 mínútur. Kælið. Stráið hrásykrinum yfir búðinginn og bræðið undir grilli eða með gasbrennara.
|
|
|
|
|