Blæjuber

[Cape Gooseberry]

 

Blæjuber eru seld með pappírskenndu hýði sem minnir á blæju og sést oft glitta í appelsínugult berið í gegnum rifur á hýðinu. Blæjuber eru upprunnin í Perú en hafa verið mikið ræktuð á síðustu öldum í Suður-Afríku. Berin eru einkum notuð til skreytinga á eftirrétti, kokteila og kökur. Einnig er þeim stundum dýft í súkkulaði til hálfs og hýðinu þá ýtt til hliðar. Blæjuber eru með súrsætu bragði og ekki sérlega framandi og bragðið getur minnt lítilega á stikkilsber.

Undirbúningur og meðhöndlun. Blæjuber endast mjög lengi og hægt er að geyma þau í lokuðu íláti í þurru umhverfi í marga mánuði. Þegar blæjuber eru valin ætti að velja ber sem hafa heillegt hýði.

Uppskrift