[Butternut]
Butternut er kúrbítstegund sem hefur verið ræktuð í Ameríku í þúsundir ára. Butternut er flöskulagað ljóst eða gulleitt á litinn. Butternut er með þykku hýði sem ekki er borðað. Butternut, eins og aðrar vetrarkúrbítstegundir, er næringaríkara en aðrar kúrbítstegundir og er ríkt af A- og C-vítamíni. Butternut hefur sætt og ríkulegt bragð þegar búið er að elda það sem minnir að sumu leyti á sætar kartöflur (Sweet Potatos). Eftir eldun er auðveldara að ná hýðinu af og gott er að nota það í súpur og pottrétti. Butternut sem skorið hefur verið til helminga er gott að baka í ofni því það dregur fram sætleikann. Við baksturinn breytast sykrur ávaxtarins í einskonar karamellu. Einnig er gott að stappa saman butternut og pínulitlu hlynsírópi eða púðursykri, þá bragðast það eins og graskersbaka. Undirbúningur og meðhöndlun. Veljið butternut sem hefur hart hýði og er án bletta. Mjúkt hýði gefur til kynna að það sé óþroskað eða lélegt að gæðum. Butternut er hægt að geyma upp undir mánuð í kæli. Ef búið er að skera það niður geymist það hins vegar í u.þ.b. 5 daga í ísskáp innpakkað í plast. Uppskrift
|