[Durian]
Dáraaldin eða „durian“, vex í Tælandi, Indónesíu og á Filippseyjum og hefur þar verið kallaður „konungur ávaxtanna“ og er af mörgum talinn vera ljúffengasti ávöxtur sem þeir hafa bragðað. Hinsvegar hafa íbúar í vestrænum ríkjum ekki hrifist af þessum ávexti hingað til því lyktin af honum er svo sterk að sumstaðar í Singapore er bannað að borða ávöxtinn á almannafæri. Nokkuð má þó draga úr lyktinni með því að kæla hann. Dáraaldin er gulgrænt á litinn alsett göddum og er um 2-5 kg. að þyngd. Börkurinn er þykkur en undir honum er aldinkjöt sem líkist eggjabúðingi. Dáraaldin er helst neytt sem eftirréttar einn og sér eða með ís eða rjóma. Undirbúningur og meðhöndlun. Þegar dáraaldin er valið ætti að velja ávöxt sem er tiltölulega léttur og þar sem stilkurinn er stór og gegnheill. Þegar gott dáraaldin er hrist þá ættu fræin að hreyfast. Hægt er að meta hvort dáraaldin sé þroskað með því að þefa af miðju þess og þá ætti lyktin að vera sterk en ekki súr. Að lokum ætti að prófa að stinga hníf í aldinið og ætti hann þá að koma út klístraður. Ekki er mælt með því að neyta dáraaldins með áfengi þar sem blanda náttúrulegra efnasambanda leiðir til innri gasmyndunar. Uppskrift
|