[Ginger Root]
Engiferrót er aðallega ræktuð vegna hnúðóttrar rótarinnar til þess að krydda mat og hefur verið ræktuð í Asíu í yfir 3000 ár. Á vesturlöndum hefur engifer lengst af verið notað þurrkað í bakstur en notkun á ferskum engifer hefur aukist á síðustu árum og þá aðallega í ýmsa austurlenska rétti. Hægt er að nota ferskt engifer í rétti þar sem gefið er upp þurrkað engifer. Þegar það er gert skal þess gætt að nota engiferið í hófi. Undirbúningur og meðhöndlun. Þegar nota á ferskt engifer er rótin afhýdd og síðan rifin, söxuð eða marin. Því lengri og grófari sem rótin er þeim mun bragðmeiri er hún. Þegar engifer er valið ætti að velja rót sem er hvorki þurr né skorpin eða með mjúkri svampkenndri áferð. Auðveldara er að afhýða engiferrót sem hefur verið fryst. Fryst rót geymist í 4-6 mánuði í frysti. Einnig er hægt er að geyma engifer í plasti í ísskáp í 3-4 vikur. Uppskrift
|