[Zuccini Flower]
Kúrbítsblóm eða „zuccini flower“ líta út fyrir að eiga heima í blómavasa en eru engu að síður einstaklega bragðgóð og gefur bragð þeirra hinu fallega útliti ekkert eftir. Kúrbítur barst til Evrópu með Kólumbusi frá Ameríku og var hann í upphafi aðallega ræktaður útlitsins vegna til skreytinga. Ítalir kynbættu hann síðan og nefndu afbrigðið „Zuccini“ – það sem við þekkjum á Íslandi sem kúrbít. Kúrbítur og kúrbítsblóm eru nú hluti af hinu þekkta „ítalska eldhúsi“. Íslendingar tóku þó ekki að kynnast kúrbítnum fyrr en um miðjan níunda áratuginn og það er nýlega sem kúrbítsblómin fóru að fást hér á landi. Ítalir eru snillingar í að matreiða kúrbítsblóm og þeir djúpsteikja þau oft í deigi eða fylla þau með osti eða ansjósum og steikja eða baka í ofni. Undirbúningur og meðhöndlun. Þegar kúrbítsblóm eru keypt ætti að velja ferskustu og stífustu blómin og helst að kaupa þau sama dag og þau skulu elduð. Áður en kúrbítsblóm eru elduð þarf að þvo þau varlega og fjarlægja frævilinn úr miðju blómsins og þurrka svo varlega með eldhúsbréfi. Uppskrift
|