[Papaya]
Sólaldin eða „papaya“ á uppruna sinn að rekja til Suður-Ameríku en er nú ræktað í Mexíkó, Púertó Ríkó, Flórída og Suður-Kaliforníu. Helstu afbrigðin eru kennd við Hawaí og Mexíkó. Hawaí afbrigðið býðst hér á landi en það getur vegið um ½ kíló gagnstætt því mexíkóska sem getur vegið upp undir 5 kíló. Sólaldin er gulgrænn stór og perulagaður ávöxtur en aldinkjötið er gulleitt eða rauðgult ekki ósvipað melónu og með mildu sætu bragði. Hægt er að borða sólaldin með skeið beint úr hýðinu eða nota það í eftirrétti og ávaxtasalöt. Undirbúningur og meðhöndlun. Veljið sólaldin sem er mjúkt viðkomu (svipað og þroskuð ferskja). Liturinn ætti að vera meira gulleitur en grænleitur. Látið sólaldin þroskast í plastpoka við stofuhita. Eftir að fullum þroska hefur verið náð er best að geyma ávöxtinn í ísskáp innpakkaðan í plast og geymist hann þá u.þ.b. 3 daga. Ferskt sólaldin er yfirleitt skorið í tvennt, fræhreinsað, afhýtt og skorið í sneiðar. Fræ ávaxtarins eru æt og því er ekki nauðsynlegt að fræhreinsa hann. Uppskrift
|