[Artichoke]
Ætisþistlar eru upprunalega ættaðir frá Norður-Afríku en eru nú ræktaðir víða um heim. Ætisþistlar urðu mjög vinsælir í Evrópu meðal heldri manna á 16. öld því þeir voru taldir mjög kynörvandi. Ætisþistlar eru yfirleitt grænir og á stærð við hnefa eða ennþá stærri. Ætisþistlar eru alltaf borðaðir eldaðir en aldrei hráir. Ætisþistlar eru ríkir af kalíum og A- og C-vítamíni, þá skal geyma í kæli en má einnig frysta. Ætisþistlar eru oft bornir fram sem forréttur, eldaðir, bakaðir eða jafnvel með sósu. Undirbúningur og meðhöndlun. Alltaf þarf að þvo ætisþistla áður en þeir eru eldaðir og best er að geyma þá í vatni með stilkinn niður eins og afskorin blóm. Áður en þeir eru eldaðir er stilkurinn fjarlægður og ystu blöðin. Það tekur um 30-45 mínútur að sjóða þá. Það eru aðeins blómblöðin og krónublöðin sem eru borðuð en ekki tappinn í miðjunni. Uppskrift
|