
e. mint Myntur hafa verið þekktar krydd- og lækningajurtir frá örófi alda. Forn-Grikkir trúðu því að þær hreinsuðu röddina og læknuðu hiksta. Rómverjar notuðu myntur gjarnan við krýningar, en það var einmitt með Rómverjum sem mynta barst um Evrópu. Uppruni Í löndum austan- og sunnan við Miðjarðarhaf Notkun Mynta hefur á síðustu árum gengið í endurnýjun lífdaga má segja með vinsældum mojito kokteilsins hérlendis. En í matargerð hentar hún vel í arabískri matargerð þá einkum með lambakjötsréttum og í jógúrtsósur. Geymsla Nýskorna myntu má geyma í rökum vafningi af eldhúspappír í ísskáp í allt að tvo daga. |