Margir eru haldnir þeim ranghugmydum að bandarísk matarmenning sé sú lélegasta sem til er og nefna þá gjarnan djúpsteikingar og skyndibitamenninguna máli sínu til stuðnings. Ekki verður þrætt fyrir það að Bandaríkjamenn eru konungar skyndibitans og kannski ekki skrýtið að fólk setji sama sem merki þar á milli þar sem bandarískar skyndibitakeðjur eru mjög áberandi þar í landi og nú á síðari árum einnig í Evrópu. En Bandaríkjamenn nærast á fleiru en skyndifæði og er matargerð landsins jafn fjölbreytt og fólkið sem það byggir.
Landið er gríðarlega stórt og frjósamt auk þess að hafa gjöful fiskimið allt um kring. Hafa ber í huga að íbúar landsins eru af mjög ólíkum uppruna og má segja að hver kynslóð innflytjenda frá hinum og þessum löndum hafi lagt eittvað til í þann kokkteil sem matargerðin er. Reyndar voru frumbyggjar landsins mjög langt komnir í matargerðinni þegar Evrópubúar ruddust inn í landið. Meðal helstu afreka Indíánanna var uppgötvunin á súkkulaðinu sem Kólumbus kynnti fyrir Evrópubúum í formi drykkjar. Það var ekki fyrr en nokkrum öldum síðar að súkkulaðið varð eins og við þekkjum það í dag. Þá voru Indíánarnir búnir að uppgötva poppkornið, farnir að reykja lax og gufusjóða skelfisk. Hvert ríki hefur líka sitt einkenni sem að sjálfsögðu markast af því hvað er helst ræktað eða veitt á staðnum.
Epla og graskersbökur einkenna nokkur mið og norðurríki, skelfiskur einkennir Florida og þau suðurríki sem liggja að Mexíkóflóa. Þá eru nautasteikur frá Texas löngu heimsfrægar og svo mætti lengi telja. Matargerðinni í Bandaríkjunum er kannski best lýst með Kajun matnum frá Luisiana. Matreiðsluaðferðirnar og meðferð á hráefni kemur frá Frakklandi blandað áhrifum frá Afríku og innfæddum Indíánum staðarins, kraftmikl kryddnotkun að spönskum hætti og með fersku hráefni staðarins verður úr kraftmikill og skemmtilegur matur sem upplifun er að bragða á.
Uppskriftir frá Bandaríkjunum:
Amerískt kjúklingakarrý
aðalréttur fyrir 4
1,2 kg kjúklingur
100 gr. beikon
1 laukur, fínsaxaður
1 græn paprika, fræhreinsuð, skorin í bita
2 sellerýstönglar, saxaðir
1 ½ msk karrýduft
75 gr. hveiti
1 tsk timjan, þurrkað
1 dós tómatar, saxaðir
175 ml kjúklingasoð
1 sítróna
Pipar nýmalaður
Salt
50 gr rúsínur
Leiðbeiningar
-
Kjúklingurinn er skorinn í bita og þeim svo velt upp úr hveitinu. Beikonið er skorið í bita og sett á pönnu, það steikt þar til fitan er bráðnuð og það er orðið stökkt. Takið beikonið af pönnunni og látið renna af því á pappír.
-
Kjúklingurinn er því næst steiktur í feitinni af beikoninu þar til þeir eru gullinbrúnir. Takið því næst kjúklinginn og setjið á disk.
-
Látið laukinn á pönnuna og látið hann malla við meðalhita í 4-5 mínútur. Bætið þá papriku, hvítlauk og sellerý á pönnuna og steikið í 3-4 mínútur til viðbótar. Karrýdufti og timjaninu er því næst stráð yfir og látið krauma í 2-3 mínútur.
-
Setið tómatana út á pönnuna ásamt safanum úr dósinni. Setjið einnig rúsínurnar og kjúklingasoðið. Hitið að suðu. Kreistið safann úr sítrónunni og hrærið saman ásamt pipar, salti og púðusykri.
-
Setjið kjúklingabitana aftur á pönnuna og ausið sósunni yfir. Setjið lok á pönnuna og látið malla við vægan hita í ca 30 mínútur, eða þar til kjúklingurinn er soðinn í gegn.
-
Smakkið sósuna til og berið kjúklinginn fram á hrísgrjónabeði.
Bláberja balsamico
meðlæti
4 bollar frosin eða fersk bláber
¼ balsamic edik
¼ bolli sykur
Lime hýði af 1 lime
1 kanilstöng
Leiðbeiningar:
-
Þýðið bláberin. Setjið þau í pott og merjið þau með skeið. Bætið vínediki, sykri, lime og kanil og látið sjóða. Lækkið hitann, setjið lokið á og látið malla í 20 mínútur.
-
Kælið aðeins og látið í stóra skál. Setjið lok á skálina og látið standa í kæli í 2 daga.
-
Setjið sigti yfir stóra skál. Hellið bláberjablöndunni í sigtið og pressið eins mikinn vökva og hægt er.
-
Hellið edikinu í glerflöskur eða krukkur. Notið þetta sem salat dressingu eða hellið yfir grillaðan kjúkling eða naut.
Graskersbaka
aðalréttur fyrir 4
bökudeig , einfalt eða sætt, úr 250 g af hveiti
3 egg
175 g sykur
500 ml graskersmauk, niðursoðið eða heimatilbúið
400 ml matreiðslurjómi eða rjómabland
½ tsk kanell
½ tsk engifer
¼ tsk múskat, nýrifið
¼ tsk allrahanda, steytt
¼ tsk salt
Leiðbeiningar
Ofninn hitaður í 200 gráður. Bökudeigið flatt út, lagt yfir meðalstórt bökuform, þrýst niður, brúnirnar snyrtar og bakan síðan bökuð blint í um 15 mínútur. Fargið fjarlægt og hún bökuð í 5 mínútur í viðbót en síðan tekin úr ofninum og hitinn lækkaður í 180 gráður. Á meðan bökuskelin er í ofninum eru egg og sykur þeytt vel saman. Graskersmaukinu og rjómanum hrært saman við ásamt kryddi og salti. Hellt í pott og hitað rólega en blandan á ekki að sjóða. Hellt í heita bökuskelina, sett í ofninn og bakað í 35-40 mínútur, eða þar til fyllingin er farin að stífna en er þó enn dúandi í miðju. Bakan tekin út og kæld á grind. Borin fram volg eða við stofuhita.
|