|
Í Limousin-héraðinu á vesturjaðri Massif Central er mikið graslendi og héraðið er þekkt fyrir einfalda og næringarríka matrétti. Súpur eru bornar fram með hverju sem til er og brauð með. Þó að svæðið sé ekki þekkt í Frakklandi fyrir matargerð hefur Limousin samt nokkuð til að státa af. Þar á meðal Limousin-nautakjöt, en gripirnir sem kjötið er af, Limousin-naut, eru af þekktum stofni sem er vinsæll víða um heim. Einkenni nautakjötsins er einstaklega lítið fitu- og kólesterólinnihald.
Mjög gott kálfakjöt og fuglakjöt eins og “Poule noire de Barbezieux” er meðal afurða héraðsins.
Góð skinka er líka framleidd þarna og úr gæsum og öndum er framleidd kæfa og fois gras. Einn af sérréttum svæðisins er góð kartöflubaka, “pate de pommes de terre limousine”, sem gerð er úr reyktri skinku, kryddjurtum og pönnukökum. Þar má líka fá pönnukökur sem gerðar eru án þess að egg eða mjólk séu notuð, en látnar gerjast og einkum snæddar meö öðrum réttum, e.t.v. með sumarávöxtum sem lagðir hafa verið í hindberjalíkjör. Stundum eru þær vökvaðar með safa eða hunangi hellt yfir þær.
Kastaníur, heslihnetur, sveppir og trufflur sem safnað er í skógunum eru áberandi í mörgum réttum. Í Limousin-héraðinu er líka mikil ávaxtarækt og jarðarber, garðaber, bláber, hindber og krækiber eru notuð í líkjöra, sultur, tertur og bökur.
Uppskrift frá Limousin:
Crepes aux marrons et a l'orange - Pönnukökur með kastaníuhnetum, rommi og appelsínu
4 stórar pönnukökur
4 msk sætt kastaníuhnetumauk
4 msk sýrður rjómi
1 msk romm
2 appelsínur
flórsykur
1–2 msk marmelaði
Leiðbeiningar:
1. Blandið vel saman kastaníumauki, sýrðum rjóma og rommi.
2. Hitið saman 100 ml appelsínusafa með 1 msk marmelaði til að búa til sósu.
3. Flysjið appelsínurnar og skerið í átta báta.
4. Látið stóra matskeið af kastaníumaukinu og 2 appelsínubáta á hverja pönnuköku, brjótið saman í þríhyrning. Stráið flórsykri yfir og berið fram með heitri sósu.
|