Fróðleikur
Midi-Pyrenees
Midi-Pyrénées er þekkt fyrir kröftuga og fágaða matargerð. Auðæfi á svæðinu, eins og vín og líkjörar, uppskera bænda og búfjárafurðir eru áberandi í matargerðinni. Þegar þú borðar í Midi-Pyrénées þá birtist þér matarmenning sem geymir margar hefðir, allt frá því hvernig maturinn er framleiddur til markaðanna þar sem hann er seldur og áfram til þess hvernig hann er eldaður og fram borinn. Ótal uppskriftir og sérréttir eru til og margir þeirra hafa verið merkilegt framlag til matargerðar um allan heim.


Svartar trufflur, líka þekktar sem svartir demantar, eru einhver sjaldgæfasti og dýrasti matur í heiminum. Þessi lyktarsterki sveppur vex við rætur eikartrjáa og er fundinn með sérstaklega þjálfuðum svínum og hundum. Frábært bragðið af trufflunum nýtur sín best með því að sneiða þær niður og setja undir skinn kjúklings fyrir steikingu, í miðju eggjaköku eða í ýmsum öðrum réttum.

Foie gras (andalifrarkæfa) er annað þekkt ljúfmeti frá Midi-Pyrénées-svæðinu. Gæsa- eða andalifur frá gascony er hvergi betri né bragðmeiri og áferðarbetri.


Roquefort-ostur hefur verið stolt eldhúsa um allan heim þó að hann sé aðeins búinn til á Aveyron-svæðinu í Midi-Pyrénées. Hann er oft nefndur konungur ostanna og er þessi bragðmikli ostur búinn til úr sauðamjólk og látinn gerjast í kalksteinshellum þar sem hann þróar sitt bláæða innihald. Sælkerar vilja Roquefort einan, en hann er jafn gómsætur með salatsósu eða sem sósa með kjöti eða pasta. Auk ostanna eru margar hefðir í matargerð í héraðinu. Cassoulet, foie gras, lambakjöt, bragðmiklar súpur, bökur og brauð eins og ‘gâteau à la broche’ sem er grilluð kaka.


Uppskriftir frá Midi-Pyrennees:


Cassoulet - Kjötréttur með baunum, róssmarín og franskri pylsu


500 g dós Cannelini-baunir

500 g svínakjöt – skorið í teninga

500 g lambakjöt – skorið í teninga

450 g Tolouse-pylsa

250 g beikon – saxað

2 stórir laukar – gróft saxaðir

1 lárviðarlauf

3 msk tómatþykkni

1 msk Herbes de Provence

2 msk olía

salt og pipar


Leiðbeiningar:


1. Stillið ofninn á 180°C.


2. Setjið baunir, lauk, hvítlauk, beikon og jurtir í pott ásamt 500 ml af vatni. Látið suðu koma upp og sjóðið í 10 mínútur.


3. Steikið svínakjöt og lambakjöt á pönnu, setjið inn í ofn í 10 mínútur. Bætið toulouse-pylsu út í pottinn ásamt baununum og sjóðið í 20 mínútur.


4. Bætið nú lambakjöti og svínakjöti í pottinn, setjið lok á og látið í ofninn. Bakið í 1½–2 klukkutíma, passið að bæta við vatni ef þarf.


Pipérade


8 egg

3 paprikur – skornar í strimla

3 tómatar – saxaðir

3 hvítlauksrif – söxuð

3 skalottlaukar – skornir í þunnar sneiðar

120 g smjör

salt og pipar


Leiðbeiningar:


1. Bræðið smjör í djúpri þykkbotna pönnu.


2. Bætið við grænmeti og hvítlauk, steikið á lágum hita í 20 mínútur.


3. Hrærið eggin og hellið saman við grænmetið.


4. Hafið lágan hita og hrærið þar til eggin byrja að þykkna, passið að ofelda ekki eggin.


5. Bragðbætið með salti og pipar og berið fram með ristuðu brauði.