|
Hefðbundin matargerð í Norður-Frakklandi er gjarnan nokkuð bragðmikil því úr skógum Ardennea-fjalla fæst villibráð eins og hjartarkjöt og villisvín. Villibráð er ætíð á matseðlum veitingahúsanna og pâté d'Ardennes, villibráðarkæfa krydduð með einiberjum, er líklega einn frægasti rétturinn.
Flæmsk áhrif eru augljós – það er algengt að fá “carbonnade” (nautakjöt soðið í bjór með lauk og kryddi), “hochepot” (pottrétt úr nautakjöti, svínakjöti, lambakjöti og nautahala með grænmeti), caudiére (sjávarfangspottrétt með kræklingi og lauk) og veau flammande (kálfakjöt soðsteikt með þurrkuðum aprikósum, sveskjum og rúsínum). Þrátt fyrir nálægð við sjóinn er undarlega lítið um fisk- og sjávarrétti á matseðlum inni í landi. Samt eru moules-frites (kræklingur og franskar) vinsæll réttur í Lille, eins og í nágrannalandinu Belgíu. Hér er bjór líka uppáhaldsdrykkurinn jafnvel þó að svæðisdrykkurinn sé Genièvre, gin kryddað með einiberjum.
Ostar sem eru framleiddir hér úr kúamjólk eru bragðsterkir og hafa bitra lykt. Frægasti osturinn á þessum slóðum er bragðsterkur maroilles (mjúkur, sterkur með rauðum hjúp), notaður til að búa til flamiche, sem er nokkurs konar terta úr ostadeigi og púrru.
Fyrir sætindafólk eru crêpes à la cassonade (pönnukökur með muscovado-sykri) oft á matseðlum, en vöfflur (gaufres) eru sérréttur og má finna í tveimur útgáfum, annars vegar þykkar kökur sem bornar eru fram með sykri eða rjóma, eða vöfflulaga kex fyllt með sultu eða sírópi. “Chantilly cream” – sætur þeyttur rjómi – er sagður eiga uppruna sinn hér.
Uppskrift frá Calais:
Carbonnades Flamandes - Nautakjötspottréttur með flæmskum áhrifum
1 kg nautakjöt
3 laukar – gróft saxaðir
3 msk olía
2 msk brúnn sykur
1 msk smjör
2 nautasoðsteningar
1 lítri dökkur bjór
250 g sveskjur
1 msk maisenamjöl
1 msk rjómi
Leiðbeiningar:
1. Steikið lauk á pönnu í 3–4 mínútur, bætið svo sykrinum við og brúnið.
2. Brúnið nautakjötsteninga á djúpri pönnu í olíu og smjöri, látið svo laukinn saman við.
3. Bætið við bjórnum, kjötteningum og sveskjum. Látið malla á vægum hita í 2–3 tíma.
4. Blandið saman rjóma og maisenamjöli og hrærið út í kássuna til að þykkja.
|