APÚLÍA - Puglia
Apúlía er í suðausturhluta Ítalíu og nýtur langrar strandlengju sem veitir íbúunum aðgang að miklu úrvali sjávarafurða allt árið. Einkennisréttir héraðsins eru m.a. kolkrabbi, ostrur og jafnvel sjóskjaldbökur. Að auki er hér frjósamur jarðvegur sem í er ræktað mikið úrval grænmetis, meðal algengra tegunda er paprika, eggaldin, fennika, ætiþistlar, salatkál og tómatar.

Þar sem svæðið er fyrrverandi grísk nýlenda er matreiðsla hér töluvert frábrugðin því sem tíðkast í nálægum héruðum, þ.e. í Kampaníu og Molise. Notkun hráefnis eins og lambakjöts, eggaldina og sauðamjólkurosta (sem líkjast gríska fetaostinum) ber því vitni hverjir réðu ríkjum hér fyrrum. Hveitideig (pasta) er líka miklu vinsælla hér en í öðrum héruðum Ítalíu og lambakjötsbökur eða hinar vinsælu fiskibökur “le tielle di pesci” má finna á mörgum matseðlum. Dæmigert snarl í þessu héraði er “calzone”, þekkt sem „stóri sokkurinn“, og er venjulega aðeins gert úr lauk, svörtum ólífum, kapers, ansjósum og “pecorino”-osti án nokkurs kjöts.

Apúlíabúar eru stoltir af heimagerðu pasta sem oft er formað í óvenjulega lögun eins og “orecchiette” (lítil eyru). Í sunnudagskvöldverðinn er “Maccheroni al forno” í uppáhaldi en þetta er ofnbakaður pastaréttur með litlum lambakjötsbollum, niðursneiddum harðsoðnum eggjum, ætiþistlum, salamipylsu og osti, gjarnan með deigi ofan á.

Apúlía er vel þekkt fyrir sætar hunangsmelónur sem eru oft bornar fram við lok máltíðar. Í Apúlía eru líka búnar til fjölmargar kökutegundir og kex eins og t.d. “panzerotinni con fiche” en einnig niðursoðnir ávextir og sultur, réttir sem sýna arabísk áhrif sem líklegt er að hafi borist með Grikkjum.

 

Uppskrift frá Apúlíu:


Orecchiette pasta með krækling, fenniku og tómat

 

500 g orecchiette-pasta, eða sambærilegt

600 g kræklingur

500 g ferskir saxaðir tómatar

150 g fennika

hvítlaukur

steinselja

ólífuolía

salt og pipar

 

Leiðbeiningar:

 

1. Saxið steinselju og 1–2 hvítlauksrif saman og setjið til hliðar.

 

2. Leggið kræklinginn í stórt ílát með hreinu köldu vatni og hendið þeim sem eru brotnir eða lokast ekki þegar bankað er í þá.

 

3. Sjóðið orecchiette í söltuðu vatni í ca 4–6 mínútur eða samkvæmt leiðbeiningum á pakka. Nota má annað pasta í stað orecchiette og skal það soðið samkvæmt leiðbeiningum á pakka.

 

4. Hvítlaukur og steinselja er látið krauma í ólífuolíu í 1–2 mínútur, bætið svo við tómötum og seinast kræklingnum. Sjóðið allt saman á háum hita í nokkrar mínútur eða þar til kræklingaskeljarnar hafa allar opnast, hendið þeim sem opnast ekki.

 

5. Kryddið með salti og pipar, hrærið saman við oricchiette-pasta og stráið yfir meiri steinselju.