|
Lítið og fámennt svæði sem liggur á milli Kampanja, Apúlía og Kalabríu. Mest af svæðinu er land sem er hrjúft og þurrt og þetta gerir Basilíkata eitt af verstu landbúnaðarsvæðum á Ítalíu. Algengasti maturinn er grænmeti og pasta, með kjöti við hátíðleg tækifæri. Næstum allar grænmetistegundir sem nýttar eru á Ítalíu eru borðaðar í Basilicata, þar á meðal hinn beiski laukur svæðisins, sveppir, hestabaunir, ætiþistlar, kartöflur og paprika. Peperonata er uppáhaldsréttur á svæðinu og er gerður úr sætri papriku, tómötum og rauðum pipar, oft með svínakjötsbitum saman við. Það einkennir suðrænu matargerðina hversu frjálslega rauður pipar er notaður. Svínakjöt er aðalkjötréttur héraðsins og birtist í ótal mörgum sérréttum þar um slóðir. “Lucanica” er krydduð pylsa, fræg um alla Ítalíu, og” Pezzente” (betlarar), sem er salamipylsa spekkuð með rauðum pipar, er einstök fyrir Basilíkata og er gerð úr ýmsum ódýrari hlutum svínaskrokksins. Besta “Salsicce Lucane” er gert með því að nota aðeins fyrsta flokks kjöt sem er kryddað með saltaðri papriku og fennelfræjum, eða með svínafeiti, pipar, salti, peperoncino og fennelfræjum. Þó að fólk frá öðrum svæðum Ítalíu geti efast um að þessi pylsa sé upprunnin hér, myndu sennilega fáir mótmæla því að úrvalið sem framleitt er í héraðinu, þar sem svín eru í miklu áliti og eru næstum einhliða alin á náttúrulegu fóðri (baunum, maís og akörnum) sé með því besta í landinu. Ekki eru margar sætindategundir borðaðar hér ef undan eru skildar bragðríkar sítrónur og appelsínur héraðsins. Algengustu ábætisréttir eru úr möndlum. Uppskrift frá Basilíkata: Graskers- og cannelini baunapottréttur 250 g þurrkaðar Cannelini-baunir 3 msk ólífuolía 2 hvítlauksrif – fínt söxuð 500 g grasker – skorið í þunnar sneiðar 2 lárviðarlauf fennikufræ salt og chili-flögur Leiðbeiningar: 1. Leggið baunirnar í bleyti í að minnsta kosti hálfan sólarhríng, látið renna af þeim og skolið vel, setjið þær síðan í sjóðandi vatn og látið bulla í 10 mínútur. Lækkið hitann og sjóðið í ca hálftíma eða þar til baunirnar eru orðnar vel mjúkar. 2. Hitið olíunna, bætið við hvítlauk en takið hann burt um leið og hann fer að skipta um lit. Steikið graskerið létt í olíunni ásamt lárviðarlaufi, fennikufræjum og ögn af salti, látið krauma á lágum hita með lokið á. Bætið við vatni ef nauðsyn krefur. 3. Takið lárviðarlaufið í burtu þegar graskerið er orðið meyrt og stappið með kartöflukremjara. Blandið soðnum baunum saman við og kryddið með salti og pipar samkvæmt smekk.
|