FRIÚLÍ
Í þessu fallega héraði eru hinar fallegu Adríahafsstrendur, tilkomumikil fjallasýn og vínekrur. Fríulí-Feneyjar Guilia er að mestu óuppgötvað svæði af ferðamönnum með landamæri að Austurríki og Slóveníu.

Þrátt fyrir að blanda matargerðar frá Pó-dalnum og Alpafjöllunum einkenni héraðið er auðvelt að greina áhrif frá Austurríki, Slóveníu og Þýskalandi. Maís er aðalkorntegundin en mikið er notað af baunum, ávöxtum og grænmeti, þar á meðal hvítum næpum, sperglum og hinni beisku dvergkaffifífilsrót (sikoria). Hveitibollur (gnocchi) eru einn af sérréttum héraðsins og eru búnar til úr kartöflum, kúrbít eða þurru brauði. Svínakjöt er matur fátæka mannsins en íbúar Fríulíu veiða líka allar mögulegar tegundir sjávarfangs í Adríahafinu.

Réttir héraðsins einkennast af kryddi, súrsætum sósum og reyktum mat. Reykt hráskinka fæst alls staðar og einnig reyktur ricotta-ostur og reyktur silungur, en alla þessa rétti er erfitt að fá annars staðar á Ítalíu. Íbúar Fríulí segjast framleiða bestu hráskinku í heimi. “San Danielle Prosciutto” sem er aðeins búin til hjá 27 bændum í bænum San Danielle er krydduð með besta sjávarsalti, laus við öll aukefni og tekur bragð af hinu ferska Alpaloftslagi.

Margir hefðbundnir réttir bera merki um þýska og slavneska matarhefð, réttir eins og “lota”, súpa sem búin er til úr baunum, kartöflum og hvítkáli, og “porcina” sem er blanda af soðnu svínakjöti með súrkáli, sinnepi og piparrót.

Flestir af ábætisréttum héraðsins bera þýsk einkenni eins og eplabaka, bakaður appelsínubúðingur “Cuguluf”, kringlótt kaka og “Gubana” sem gerð er úr þurrkuðum ávöxtum og rúsínum.

 

Uppskrift frá Fríulí:


Gnocchi di Pane

 

500 g hvítt brauð – skorpur skornar af

2 egg

2 msk parmesan

3 msk hveiti – meira ef þarf

 

Leiðbeiningar:

 

1. Bleytið brauðið í vatni eða mjólk, kreistið svo vel úr því. Blandið saman brauðinu, eggi, hveiti, parmesan, salti og pipar og hnoðið vel saman.

 

2. Búið til kúlur á stærð við valhnetur, rúllið upp úr hveiti og setjið á bakka. Látið standa í kæli í ca 10–15 mínútur.

 

3. Setjið kúlurnar í saltað sjóðandi vatn og sjóðið í 4–6 mínútur eða þar til þær fljóta upp á yfirborðið.

 

4. Berið fram með bræddu smjöri, ferskri salvíu og parmesan eða með kröftugri tómatsósu, kúrbít og beikoni.