KALABRÍA - Calabria
Þetta er tilkomumikið og fjöllótt landsvæði. Kalabría er þakin snjó fram til loka maí. Ólíkt nágrannahéraðinu Basilíkata er Kalabría skógi vaxið svæði með blómabreiðum og mörgum grænum svæðum. Héraðið hefur mikið af hreinasta vatni á allri ítölsku ströndinni þar sem engin mengun er þar.

Maturinn í Kalabríu er einfaldur, pasta og grænmeti með ólífuolíu og pylsum. Enda þótt mikið sé af túnfiski, sverðfiski, sardínum og ansjósum í sjónum ber mest á réttum frá fjallasvæðunum og svínakjöt er einkum matur fátæka mannsins á þessu svæði. Mikið er um pylsur og ein slík vinsæl pylsa er “Ndjua” sem er búin til úr svínafitu, lungum og nýrum og er mikið krydduð með rauðum chili (peperoncini) og svörtum pipar.

Kastaníu-, ólífu- og sítrusávaxtatré, möndlutré og fíkjutré vaxa öll vel í hinu tempraða loftslagi Kalabríu. Sérstök tegund af appelsínum sem vex aðeins í Kalabríu nefnist “arancia calabrese”. Þessar appelsínu þykja einkum góðar fyrir börkinn sem er soðinn og sultaður og notaður um alla Ítalíu í ávaxtakökur og sætabrauð. Kalabría er líka fræg fyrir “Bergamots” en það er lítill perulaga sítrusávöxtur sem er notaður í sætindi og kex. Þriðjungur af allri ólífuolíu sem unnin er á Ítalíu er framleidd í Kalabríu. Eggaldin er aðalgrænmetið og íbúar Kalabríu borða það á marga vegu: legið í ólífuolíu með hvítlauk og steinselju; innbakað í eggja- og brauðdeigi og steikt; fyllt með söltuðum ansjósum og brauðmolum. Sæt paprika, ætiþistlar, kúrbítur, ýmsir laukar og sveppir eru líka algengir. Eins og í Basilíkata-héraðinu er peperoncini aðalkryddið hérna.

Súkkulaðihjúpaðar fíkjur, lakkrísblandaðar kökur og bragðmiklar smjörlegnar kastaníuhnetukökur eru eftirréttir héraðsins og um páska er hefðbundið sætabrauð, “Ciambelonne”, eitthvað sem allir verða að smakka.

 

Uppskrift frá Kalabríu:


Hringlaga kaka með sítrónu og birkifræjum “Ciambellone”

 

4 bollar hveiti

2 egg

½ tsk vanilludropar

½ bolli sykur

½ bolli mjólk

½ tsk kanill

1 msk rifinn sítrónubörkur

½ tsk lyftiduft

125 g smjör – við stofuhita

1 msk birkifræ

1 egg

 

Leiðbeiningar:

 

1. Stillið ofninn á 180°C.

 

2. Setjið hveitið í stóra djúpa skál, myndið svo dæld í miðjuna.

 

3. Bætið við öðrum hráefnum, smátt og smátt og hrærið vel saman í hvert skipti.

 

4. Þetta á að mynda deigkúlu sem svo þarf að hnoða saman, bætið við hveiti ef deigið er of blautt. Hnoðið í nokkrar mínútur eða þar til það er orðið silkimjúkt.

 

5. Rúllið deiginu í þykka lengju og myndið hring úr lengjunni, setjið á bökunarplötu og penslið með eggi.

 

6. Bakið í 40 mínútur eða þar til þetta er orðið gullbrúnt og fallegt.