|
Matreiðsla í Kampaníu og Napolí er heimsfræg. Þetta er upprunastaður pitsunnar og heimasvæði hinna bestu mozzarella osta sem fáanlegir eru. Hvar sem farið er í þessu héraði varpar Vesúvíus leikrænum skugga yfir frjósamt landið. Vegna gosefnajarðvegsins í Kampaníu er ræktað þar sumt af bestu ávöxtum og grænmeti sem vex á Ítalíu. Því er mjög eðlilegt að margir réttir byggist á gnótt svæðisins af grænmeti, sérstaklega hinum víðfrægu sætu San Marzano-plómutómötum. Svæðið er einnig vel þekkt fyrir ostaframleiðslu, þar á meðal mozzarella ost, scamorza, provolone og pecorino. Spaghetti með tómötum og basil, “Spaghetti vongole”, pitsa með mozzarella osti, fylltum tómötum og “eggaldin parmigiana” eru vel þekktir réttir svæðisins. Kampanía er ekki eina hérað Ítalíu sem státar af góðum buffalo-mozzarella ostum, en á líklega nokkra af þeim bestu. Engar sannanir liggja fyrir um það hvar þessi ostur var fyrst framleiddur en vitað er að munkar í Capua framleiddu einhvers konar mozzarella ost á miðöldum. Í ágústmánuði á hverju ári heldur borgin Salerno stærstu mozzarella hátíðina til að hylla þennan frábæra ost. Ekta mozzarella ostur er búinn til úr mjólk vatnabuffalsins og er eitt mesta lostæti í allri ítalskri matargerð. Vatnabuffalar voru fluttir til Ítalíu frá Asíu á áttundu öld og mest af ostaframleiðslunni er í Kampanía-héraðinu, sérstaklega í kringum Benevento og Casserta. Mozzarella ostur sem búinn er til úr kúamjólk nefnist Fior di latte og getur ekki talist vera ekta mozzarella. Í Kampaníu er líka framleiddur besti Limoncello-líkjörinn. Þetta er vinsæll ítalskur líkjör sem gerður er úr hinum frægu risastóru Amalfi-strandar sítrónum “limone di massa” sem eru mun stærri og safaríkari en flestar aðrar sítrónur. Ef þú heimsækir Amalfi-ströndina skaltu líka hafa augun opin fyrir sítrónusírópi, sítrónukurli, sítrónukexi, sítrónuköku, mjúku sítrónukremi og hinni einkennilegu sítrónueggjahræru. Ef gómsætir ávextir héraðsins eru undanskildir má segja að sætindi séu aðeins notuð við sérstök tilefni. Eftirréttir eru yfirleitt bragðmiklir og fagmannlegir og innihalda rjóma, ósaltaðan sauðamjólkurost (ricotta) og þurrkaða ávexti. Uppskrift frá Kampaníu: Eggjaldinbaka með tómat og parmesan 1 egg 125 g hveiti 150 ml vatn salt ólífuolía 1 eggaldin – skorið í sneiðar 300 ml tómatsósa – heimalöguð eða keypt 125 g parmesan- eða pecorino-ostur ½ pakki basil – gróft saxað 1 mozzarella kúla (200 g) þunnt sneidd Leiðbeiningar: 1. Stillið ofninn á 180°C. 2. Hrærið saman hveiti, egg, vatn og örlítið salt, geymið í kæli í ca 20 mínútur. 3. Hitið olíu á pönnu. Hjúpið eggaldinsneiðar með deigi og steikið þar til þetta er orðið gullbrúnt á lit. Þerrið sneiðarnar á pappír. 4. Látið þunnt lag af tómatsósu í botninn á eldföstu móti, setjið síðan eggaldinsneiðarnar, saxað basil og sósu til skiptis í mótið. 5. Seinasta lag á að vera mozzarella sneiðar og parmesan-osti stráð yfir. 6. Bakist í 20-30 mínútur eða þar til þetta er orðið heitt í gegn og gullið að ofan.
|