Fróðleikur
LANGBARÐALAND - Lombardy

Langbarðaland er auðugt svæði sem liggur á milli Alpafjalla í norðri og Pódalsins í suðri og þar eru sum fallegustu og fjölbreyttustu svæði Ítalíu. Með sinn einstaklega frjósama jarðveg hefur Langbarðaland náð hlutfallslega mestri uppskeru á ekru allra svæða á Ítalíu.

Margvíslegra utanaðkomandi áhrifa gætir í þessu héraði en þar eru samt ýmsir venjubundnir þættir; kjöt er pönnusteikt (Ossobucco, steikt kálfakjöt) (austurrísk áhrif); grænt grænmeti er ekki hefðbundin fæða og smjör er aðalsteikingarfitan. Rjómi birtist oftar í matreiðslu Milanbúa en í nokkru öðru héraði, sennilega bæði af því að Frakkland réð Langbarðalandi í mörg ár og einnig vegna hins frjósama fjallahaglendis.

Polenta var einkum borðað af þeim sem unnu erfiðisvinnu á bændabýlunum þar sem varla var neitt kjöt fáanlegt. Súpur eins og Minestrone voru líka mikill hluti í fæði bóndans. Frá hinum ríku landeigendum fengum við risotto en sá frægasti er “Risotto Milanese” sem er efst á matseðlum í Langbarðalandi. Svínakjöt, kálfakjöt og ostur eru allt mikilvægir réttir hér. “Salami Milano og “Bresaola”, loftþurrkað fitusnautt nautakjöt, er sérréttur Valtellina-svæðisins og er borið fram þunnt sneitt með klettasalati, parmesanflögum og sítrónu. Pasta var miklu síðar tekið upp í fæði héraðsbúa.

Einn frægur réttur frá Lombardy er hinn hefðbundni “Mostarda di Cremona”, frá borginni Cremona á Póánni og er gerður úr niðursoðnum ávöxtum, eins og kirsuberjum, fíkjum og perum, sem geymdir eru í blöndu af sætu sírópi og hvítu sinnepi. Niðurstaðan er sterkur bragðbætir sem er borinn fram með “Bollito Misto”, soðnu kjöti, villibráð eða fuglakjöti.

Mikill fjöldi dásamlegra osta fæst í þessu frjósama landi; hinn lyktarsterki gorgonzola, hinn mildi bel paese, Grano Padano og grófi Taleggio. Með fjölbreyttum hráefnum héraðsins eru búnir til fyrsta flokks ábætisréttir, þar á meðal hin hvolflaga, ávaxtabætta jólakaka “Panettone” sem Milanó hefur orðið fræg fyrir.



Uppskrift frá Langbarðalandi:


Möndlukökur

 

2 bollar möndlur -afhýddar

½ bolli sykur

1 tsk vanilludropar

2 bollar sykur

5 eggjahvítur

 

Leiðbeiningar:

 

1. Stillið ofninn á 180°C.

 

2. Saxið möndlur og sykur saman í matvinnsluvél, bætið við vanilludropunum.

 

3. Stífþeytið eggjahvíturnar og blandið varlega saman við möndlurnar.

 

4. Setjið með matskeið á pappírsklædda bökunarplötu með nokkurra sentimetra millibilli. Bakið í 20 mínútur. Stráið sykri yfir og látið standa við stofuhita í 1–2 klukkutíma.