|
Latíum er frjósamat akuryrkjuland sem umlykur Rómaborg. Lambakjöt er verulegur hluti af mataræði Latíum-búa og “abbacchio”, sem er ungt spenalamb, er framreitt steikt og með því grænmeti sem efáanlegt á hverri árstíð. Annar vinsæll réttur er “Saltimbocca” sem eru þunnar sneiðar af kálfakjöti sem vafið er utan um salvíu og parmaskinku. Algengasti matur í Róm er brauð, ostar, ólífur, ferskt grænmeti og pasta. Gosefnajarðvegur svæðisins hentar mjög vel til að rækta grænmeti, sérstaklega ætiþistla sem finna má 90 mismunandi afbrigði af. “Carciofi alla giudea” eru léttsteiktir ætiþistlar og “fiori di zucca” sem eru fyllt og steikt courgette-blóm má finna á flestum matseðlum í héraðinu. Spaghetti er án efa þekktasti réttur rómverskrar matargerðar og er oft með einföldum hætti. “Spaghetti alla Carbonara” búið til úr fleski, eggjum, parmesanosti og spaghetti og “Bucanti all’a amatriciana” eru hvort tveggja réttir frá Róm. Latíum liggur að sjó þannig að ferskur fiskur, saltfiskur, skelfiskur og kuðungar eru hráefni sem finna má í matargerð héraðsins. Mikilvægasti osturinn í héraðinu er mjög saltur “Pecorino Romano” frá Amatrice. Þetta er ostur úr sauðamjólk og svipar til parmigiano. Máltíðir í Latíum-héraðinu hefjast með fjölda forrétta sem einir og sér væru nægilegur veislumatur. Þar eru diskar af ansjósum, sardínum, túnfiski, steiktum rækjum, hráskinku, salamipylsu, ólífum, sveppum, súrgúrkum, sólþurrkuðum tómötum, súrsætum lauk, baunum og svínakjöti, pitsum, focaccia, snittum, grænmetisbökum, fylltum eggaldinum, papriku og tómötum, hrísgrjónabollum (Arancinni), grænmeti eða kjöti, brauði sem grillað er og bragðbætt með hvítlauk og olíu, eins og bruschetta, eða sneitt og skreytt með kjöti og grænmetispasta eða ostum. “Tiramisu” eða “Taktu mig upp” er vinsæll réttur við lok góðrar máltíðar. Uppskrift frá Latínum: Kálfakjöt með parmaskinku og salvíu 8 þunnar sneiðar af kálfakjöti 8 stór salvíublöð 8 sneiðar af parmaskinku (ekki of þunnar) 50 g smjör ½ bolli hvítvín salt og pipar Leiðbeiningar: 1. Fletjið kjötsneiðarnar aðeins með kjöthamri, leggið svo á miðjuna eitt salvíublað og eina sneið af parmaskinku, rúllið upp og festið með tannstöngli. 2. Bræðið smjörið í stórri þykkbotna pönnu og brúnið kjötrúllurnar á öllum hliðum, kryddið með salti og pipar. Hellið víni út á og eldið í 5–8 mínútur. Stráið steinselju yfir og berið fram.
|