|
Þetta svæði liggur að Úmbríu á eina hlið og Adríahafi á hina. Marke er að hluta til fjöllótt svæði og landinu hallar frá fjöllunum niður að sjónum. Ferðamenn hópast til hinna beinu, mjúku og sandþöktu stranda Marke, en svæðið upp af ströndinni láta þeir að mestu ósnortið. Adríahafið býður upp á mikið úrval fisk- og skelfisktegunda sem sumar eru sjaldgæfar og finnast aðeins þarna. Því kemur ekki á óvart að tveir af aðalréttunum eru fiskisúpur, “Brodetto” og “Muscioli alla marinara”, kræklingur sem settur er á pönnu og eldaður yfir eldi. Næst á eftir fiski er svínakjöt vinsælast og er uppistaða í mörgum réttum frá Mið-Ítalíu. Íbúar Marke segjast vera upphafsmenn “Porchetta”, það er beinlaust svínakjöt steikt á teini og kryddað með fennel og hvítlauk. Pasta, það er maccheroncini og tagliatelle, hefur áunnið sér mikilvæga hefð í Marke og konurnar á þessu svæði eru frægar fyrir að vera miklir meistarar í pastagerð. Sveppir vaxta víða í héraðinu. Þrjár tegundir af trufflusveppum finnast í Marke og það eru haldnar þrjár truffluhátíðir í Acqualagna á hverju ári. Blómkál frá þessu héraði er frægt um alla Ítalíu. Og eplin, ferskjurnar, fíkjurnar og kirsuberin eru einstök að bragðgæðum, sem ber vitni hinum frjósama jarðvegi. Uppskrift frá Marche: Skötuselur með tómat- og hvítvínssósu 800 g skötuselur 250 g ferskir plómutómatar 4 msk saxað ferskt rósmarín handfylli af steinselju – gróft söxuð hvítlauksrif 8 msk ólífuolía hálft glas af hvítvíni chili-flögur – má sleppa salt og pipar Leiðbeiningar: 1. Byrjið á því að skera kross í alla tómatana, hellið yfir þá sjóðandi vatni og látið standa í eina mínútu. Þá losnar hýðið og er hægt að renna því af. Skerið svo tómatana í helminga og skrapið fræin innan úr. 2. Skerið fiskflökin í stóra bita, hafið roðið á. 3. Steikið hvítlaukinn í olíunni á lágum hita ásamt chili-flögunum og helming af rósmarín og steinselju. Bætið fiskinum í og látið krauma í 1–2 mínútur. 4. Hellið hvítvíninu í pottinn og leyfið því að gufa upp að mestu, bætið svo tómötunum út í, lækkið hitann og setjið lok á pottinn. Sjóðið í 10 mínútur, bætið svo afgangnum af jurtunum út í og sjóðið í 10 mínútur í viðbót.
|