Fróðleikur
TRENTÍNÓ - SUÐUR-TÝRÓL
Trentínó og Suður-Týról eru umlukt miklum fjöllum í nyrsta hluta Ítalíu. Þó að svæðin hafi ýmsar sameiginlegar matarhefðir eru Trentínó og Suður-Týról tvö ólík héruð.

Polenta er mjög vinsæll réttur ásamt villtum fuglum, silungi og þýsku súrkáli. Annar sérréttur svæðisins er “Speck dell Alto Adige”, kjöt sem er þurrkað eins og salamipylsa, svipað og svínaflesk, og hefur orðið vinsælt um alla Ítalíu. Polentagrautur er dagleg fæða ásamt mörgum af hinum fjölbreyttu sveppategundum svæðisins. Villtar sveppategundir sem mikið er af í Dólómítafjöllunum eru m.a. porchini-sveppir, kantarella, chiodini-sveppir og margar fleiri tegundir. Á sumrin og haustin er haldinn stórkostlegur sveppamarkaður í Trentó, höfuðborg svæðisins, þar sem hundruð sveppategunda eru fáanlegar. Allir íbúar svæðisins virðast vera sveppasérfræðingar. Jafnvel sumir lögreglumenn í héraðinu eru sveppasérfræðingar (micologi), sem skoða sveppina á markaðnum til að ganga úr skugga um að þeir séu söluhæfir.

Í Trentínó og Suður-Týrol eru óendanlega margir aldingarðar og þaðan koma meira en 30 prósent af eplaframleiðslu Ítalíu. Vegna hinna frábæru epla og austurrískra áhrifa á héraðið er eplabaka (strudel) vinsæl hér. Bökuna má sömuleiðis fylla með kirsuberjum, aprikósum, perum eða vínberjum. Einnig er hún stundum fyllt með ricotta-osti eða papavero-fræjum (valmúafræjum frá Torinó).

 

Uppskrift frá Trentínó:


Beikonbaka með lauk og parmesan

 

200 g smjördeig

450 g laukur – skorinn í þunnar sneiðar

100 g beikon – skorið í þunnar ræmur

⅓ bolli rjómi

⅓ bolli mjólk

1 egg

1 msk smjör

1 msk saxaður graslaukur

salt og pipar

nokkrar matskeiðar af parmesan-osti

 

Leiðbeiningar:

 

1. Stillið ofninn á 180°C.

 

2. Smyrjið kringlótt ofnfast mót sem er 23 cm í þvermál. Fletjið út smjördeigið og leggið í mótið.

 

3. Steikið laukinn á lágum hita í 5–6 mínútur bætið svo beikoni í og steikið í nokkrar mínútur í viðbót, kryddið með salti og pipar.

 

4. Blandið saman rjóma, mjólk, eggi, graslauk og parmesan.

 

5. Stráið lauk og beikoni jafnt yfir deigið og hellið svo rjómablöndunni yfir allt saman.

 

6. Bakið í 20–25 mínútur.