|
Asturia mætti kalla vöggu Spánar. Það var í þessu fjallahéraði sem herleifar og aðalsmenn Vesturgota söfnuðust saman, eftir að Márar höfðu hernumið aðra landshluta og lögðu á ráðin. Á milli fjallana við Covadonga heyjuðu þeir baráttu til sigurs um 720, ásamt hinum fyrsta kristna konungi Rekonkvista, yfir Márum. Það er kannski ekkert skrítið að þessi hluti Spánar hafi allt aðra sögu heldur en meginlandið enda er alveg heill fjallasalur sem nær yfir um 420 kílómetra, sem skilur að héraðið og meginlandið. Hér er eplarækt í miklum blóma og veðurfar vætusamt. Héraðsbúar elska að gera mjólkurbúðinga og mygluosta og eru einnig þekktir fyrir baunir og Cider. Siðum þeirra hefur oft verið líkt við siði þeirra sem koma frá Normandí.
|