Fróðleikur
Forsíða Fróðleikur Heimsins eldhús Spánn Baleareyjar og Kanaríeyjar
Baleareyjar og Kanaríeyjar

Baleareyjar eru í Miðjarðarhafinu austur af strönd Spánar og höfuðborgin er Palma á Mallorca, en Mallorca er stærsta eyjan og fjölsóttust af ferðamönnum. Allar eyjarnar eru þekktar fyrir milt loftslag, fagurt landslag og frábærar baðstrendur, sem laða til sín gesti í hundruð þúsunda tali allt árið um kring. Frumbyggjar eyjanna voru hinir einu sönnu Íberar sem hafa sjálfsagt blandast hinum ýmsu þjóðum í gegnum tíðina.

Á Baleareyjum er mikið ræktað af kryddi og alls kyns jurtum enda eyjaskeggjar þekktir fyrir frábærar súpur og bragðmikla rétti. Hér eru sjávarréttir ríkjandi, enda eru þetta eyjur og eins eiga þeir líka til marga mjög góða grænmetisrétti. Þeir vinna líka með eggaldin meistaralega vel

Kanaríeyjar eru fyrir vesturströnd Afríku í Atlantshafi. Stærri eyjarnar eru sjö talsins og fjöldi annarra minni í jaðri hitabeltisins. Eyjaklasanum er skipt í tvö héruð þ.e. Las Palmas og Santa Cruz de Tenerife. Kanaríeyjar er þekktur ferðamannastaður á Íslandi sem og annarstaðar úr heiminum en íbúarnir hafa lífsviðurværi sitt aðallega af ferðaþjónustu líkt og íbúar Baleareyja.

Á Kanaríeyjum færðu einn besta smokkfisk sem hægt er að hugsa sér, enda er smokkfiskurinn í stærra lagi og mjög bragðmikill og sá frægi réttur Calamares a la Romana er listavel gerður og afbragðsgóður.