|
Extremadura er hérað kjötsins, enda eru menn þar í minnihluta miðað við kindur og svín. Í dag eru þar miklar veiðilendur og flykkjast veiðimenn hvaðanæva frá Spáni. Á tímum Frankós var þetta fátæklegasta hérað Spánar og meginhluti landsins einungis óræktanlegt fjalllendi eða stórar jarðeignir ríkismanna. Extremadura dregur nafn sitt af því að reyna til hins ítrasta og af hörku. Segja má að það eigi við íbúa þessa héraðs, því þeir hafa þurft að hafa mikið fyrir lífinu í gegnum aldirnar ef marka má söguna. Jörð héraðsins er ekki frjósöm fyrir grænmetisrækt þó að á einum sólríkum stað norðanmegin, rækti þeir bestu papriku á Spáni. Þess í stað hafa flestir lífsviðurværi sitt af kjötrækt en þeir eru frægir fyrir eina af þremur bestu hráskinkum sem finnst á Spáni, Pinto Negro.
|