Fróðleikur
Forsíða Fróðleikur Heimsins eldhús Spánn Gamla Kastilía-León og Rioja
Gamla Kastilía-León og Rioja

Gamla Kastilía er stór og hrjóstrug háslétta. Öldum saman hafa Kastilíubúar verið þekktir fyrir að vera seigari, stoltari og ósveigjanlegri en aðrir Spánverjar.

Gamla Kastilía er fyrrum konungsríki á Norður-Spáni sem átti sitt blómaskeið á seinni hluta miðalda. Andi gamalla bardaga við Márana svífur yfir vötnum innan um fjöldann allan af gömlum kastalarústum. En þaðan er nafnið einmitt komið.

Fyrir norðan, nánar tiltekið í León er besta hveitirækt í öllu landinu enda baka þeir allskonar tegundir af brauði þar á meðal flata brauðhleifinn hogaza, sem Kastilía er svo þekkt fyrir, öðru nafni pan de patre nuestro (vort daglegt brauð). Í León, nánar tiltekið í Salamanca eru alin atnaut.

Mikið er um vínrækt í Kastilíu. Í tierra del vino eru fjögur fræg vínsvæði. Þrenn þeirra eru meðfram Duero. Dýrasta vín Spánar, Vega de Sicilia er framleitt í La Ribera del Duero ásamt fullt af góðum hvítvínum. Rioja liggur í vestur, sunnan af Baskalandi. Rioja er eins og nafnið gefur til kynna, frægast fyrir vínrækt.

Kjötpottréttir eru vinsælir í þessum hluta landsins og einnig allskonar baunakássur með chorizo pylsum.