Fróðleikur
Um Nönnu

Nanna Rögnvaldsdóttir hefur haft brennandi áhuga á mat og matargerð frá því að hún man fyrst eftir sér. Hún hefur m.a sent frá sér upplettiritið Matarást og matreiðslubækurnar Matreiðslubók Nönnu, Icelandic Food and Cookery og Maturinn okkar. Hún hefur einnig skrifað mikið í blöð og tímarit, svo sem Gestgjafann og Bístró, auk greina í erlendum tímaritum , og er fróðleiksbrunnur um flest það sem varðar hráefni til matargerðar, aðferðir og uppskriftir. (Og ef hún veit ekki svarið, þá er ekki ólíklegt að það sé að finna í einhverri af matreiðslubókunum hennar sextán hundruð.)