|
Þú getur grillað hvaða fisk sem er en vissulega henta sumar tegundir betur en aðrar. Og einhverjar tegundir er, þegar öllu er á botninn hvolft, best að grilla innpakkaðar í álpappír - en það verður eiginlega gufusteiking en ekki grillsteiking. Yfirleitt er best að fiskurinn sé með roði; það heldur honum ekki bara betur saman, heldur verður roðið sjálft stökkt og sérlega ljúffengt. Sumar tegundir af roði eru þó seigar og slíkt roð er betra að fjarlægja, annaðhvort fyrir grillun eða eftir. Roðflett flök, einkum úr fiski sem er fremur laus í sér eins og t.d. ýsa eða þorskur, detta oft fljótt í sundur, festast við grindina, fara í klessu þegar reynt er að snúa þeim og detta niður á milli teinanna. Flök með roði, þverskornar sneiðar og heilir fiskar henta mun betur. Flökin ættu ekki að vera of þykk - ekki þykkari en 2-2 ½ cm. |
|
Venjulegur púðursykur er gerður úr hvítum, hreinsuðum sykri sem melassasírópi er síðan blandað saman við en muscovado-sykur er hrásykur, unninn úr sykurreyr en ekki hreinsaður. Þótt meginefnið í honum sé auðvitað sykur og hann sé óraleið frá því að geta talist hollur inniheldur hann B-vítamín og ýmis næringarefni sem ekki er að finna í hreinsuðum sykri. Á móti inniheldur sykurinn ýmis náttúruleg bragðefni sem gera hann sérlega bragðmikinn og góðan. |
|
Óbein grillsteiking (indirect grilling) er aðferð sem margir hafa tileinkað sér á síðustu arum, enda er þetta yfirleitt besta aðferðin til að grilla stærri kjötstykki og raunar einnig margt annað sem þarf langan tíma á grillinu eða er hætt við að brenna ef það er haft beint yfir logunum. Það sem átt er við með óbeinni grillsteikingu eða grillun við óbeinan hita er að það sem á að grilla er ekki haft beint yfir eldinum, heldur til hliðar við hann eða umkringt honum. Grillið er jafnframt haft lokað og virkar þannig eiginlega eins og ofn ? í rauninni blástursofn því að hitinn frá logunum eða glóðinni leitar upp og loftið er á nokkurri hreyfingu. |