Nánar um fyrirspurnina: Finn hvergi kryddið: "Ítölsk kryddjurtablanda" en hún er notuð í ítölskum kjúklingapottrétti með gremolata, sem er uppskrift frá þér. Getur þú aðstoðað mig sem allra fyrst? Fullt svar: Þú ættir til dæmis að geta notað Italian Seasoning frá Badia, sem fæst í Nóatúni, eða hvaða aðra ítalska kryddjurtablöndu sem er, t.d. ítalskt pastakrydd frá Pottagöldrum eða Italian Seasoning frá McCormick. Ef þú finnur ekkert slíkt, þá geturðu notað blöndu af hefðbundnum ítölskum, þurrkuðum kryddjurtum, t.d. óreganó, rósmaríni, basilíku og timjani í jöfnum hlutföllum. Ítalskar kryddjurtablöndur eru reyndar með ýmsum hætti en þetta eru oftast aðalkryddin í þeim - stundum er líka t.d. salvía, sar, marjoram og steinselja, jafnvel hvítlaukur o.fl. Samsetningin er þó ekkert endilega aðalatriðið, það er mikilvægara að kryddjurtirnar séu góðar og notaðar í hæfilegu magni, hvorki of mikið né of lítið.
|