Nánar um fyrirspurnina: Ég ætla að hafa andabringur og danska villiönd. Á hvaða hita á ég að stilla ofninn? Þá á ég við undir- og yfirhita eða blástur, blástur með grilli - alveg rugluð í þessu öllu en vil að allt takist vel . Fullt svar: Nú veit ég ekki hvaða uppskriftir þú ert með en hitastigið getur í sjálfu sér verið nokkuð mismunandi og steikingartíminn einnig - þetta er bara spurning hvaða aðferð þú vilt nota. En ef ég skil þig rétt ertu með bæði bringur og heila villiönd; þá mundi ég í þínum sporum byrja á að hita ofninn í 210-220°C og brúna villiöndina í svona 10 mínútur. Lækka svo hitann í 160°C og steikja áfram í 20 mínútur eða svo. Á meðan brúnarðu aliandarbringurnar á pönnu við nokkuð góðan hita - fyrst svona 5-6 mínútur á fituhliðinni, svo u.þ.b. 2 mínútur á hinni hliðinni - lætur þær bíða í fáeinar mínútur og setur þær svo í ofninn með öndinni í um 18 mínútur. Sem sagt, heildarsteikingartími á heilu villiöndinni er 10 mínútur við háan hita og um 40 mínútur við lægri hita en bringurnar eru brúnaðar í 7-8 mínútur og svo steiktar áfram við lágan hita í 18 mínútur. Þarna er ég að miða við venjulegan yfir- og undirhita en þú getur líka notað blástur og stillt þá hitann á 150°C eða örlítið lægra. - Og ef þér finnst villiöndin ekki taka nógu mikinn lit er allt í lagi að skella grillinu aðeins á hana rétt í lokin en taka þá andabringurnar út áður.
|