Nánar um fyrirspurnina: Ég á gæsabringur í frystinum - held það sé grágæs. Hef aldrei eldað svoleiðis áður og langar að spyrja þig hvernig væri best að elda þær þannig að þær verði ekki seigar. Sá reyndar 2 uppskriftir hér á vefnum sem virka vel á mig. Fullt svar: Í fyrsta lagi er gott að láta bringurnar þiðna hægt í ísskáp, í svona 2-3 sólarhringa. Þegar þær eru alveg þiðnaðar er vissara að pota í þær (eða öllu heldur styðja fingurgómnum á þær); ef þær virka frekar stífar og harðar hefur fuglinn sennilega verið gamall og þá er best að nota bringurnar í pottrétt eða grafa þær (alveg hægt að grafa bringur þótt þær séu frekar seigar, þá er málið bara að skera þær í nógu þunnar sneiðar). Ef bringurnar virðast í lagi ætti að vera hægt að steikja þær á venjulegan hátt. Það getur verið gott – einkum ef þú ert ekki með aldurinn á bringunum á hreinu – að marínera þær, t.d. í rauðvíni og kryddjurtum, e.t.v. smáskvettu af balsamediki o.fl. í 1-2 sólarhringa í ísskáp. Þegar á að steikja bringurnar er best að þerra þær með eldhúspappír (ekki síst ef þær hafa verið maríneraðar) og snöggbrúna þær svo á pönnu við háan hita í örlítilli olíu eða blöndu af olíu og smjöri. Svo eru þær teknar af pönnunni, látnar bíða smástund og síðan settar í eldfast mót og settar inn í ofn. Hitastigið og steikingartíminn er smekksatriði, ég mundi stilla ofninn á svona 150°C og hafa bringurnar inni þar til kjöthitamælir sem stungið er í miðjuna sýnir um 55°C (gæti tekið 12-15 mínútur eftir þykkt). Svo má alls ekki gleyma að láta bringurnar standa í svona 5 mínútur áður en þær eru skornar í sneiðar og/eða bornar fram. Steikingin heldur aðeins áfram (kjarnahitinn ætti að fara upp í 57-60°C) og verður mun jafnari þannig að liturinn verður bleikur í gegn. Það má líka hafa hitann hærri (180-200°C) og tímann styttri (ca. 10 mín) eða lægri (125°C) og þá lengri tíma (gæti trúað 35-40 mínútur en hef ekki prófað það sjálf). En það er um að gera að elda bringurnar ekki of lengi við háan hita.
|