Nánar um fyrirspurnina: Ég er með fyllt lambalæri og átti von á gestum í mat en þeir komast ekki. Lærið var úrbeinað fyrir viku og settir þurrkaðir ávextir innan í. Get ég geymt það í frysti eða á ég að steikja það strax? Get ég steikt það og kælt vel og fryst á eftir og notað það kalt með heitri sósu og meðlæti? Fullt svar: Ég held að best væri að frysta lærið strax, það verður alltaf betra ef það er nýeldað en ef það er fyrst steikt, svo fryst og látið þiðna aftur. Þú getur auðvitað farið hina leiðina, steikt það og fryst svo, en ég held að það gefi betri raun að frysta það núna og steikja seinna.
|