Nánar um fyrirspurnina: Við erum að velta því fyrir okkur hvað við eigum að hafa í jólamatinn. Við viljum helst hafa önd og erum að spá í hvort við eigum að fá okkur franska aliönd eða danska eða franska villiönd. Veistu hver er aðalmunurinn á þessu þrennu? Getur þú mælt með einni önd frekar en annarri? Fullt svar: Aðalmunurinn? Ja, stærðin er náttúrlega það fyrsta sem mér dettur í hug. Aliendurnar eru 3-4 kíló, villiendurnar kannski 1 kg eða minna. Sem þýðir að aliendurnar þurfa mun lengri steikingu, 2-3 klst, en 40-50 mínútur ættu að duga fyrir hinar - eða minna, fer eftir aðferð og aldri. (Stærri og/eða eldri villiendur þurfa aftur á móti mun lengri tíma.) Kjötið af villtu öndunum er dekkra og heldur þurrara vegna þess að þær eru ekki eins feitar. Þess vegna borgar sig oft að leggja beikonsneiðar eða spekkræmur á bringuna þegar þær eru steiktar svo að kjötið þorni síður. - Dönsku endurnar sem fást núna eru stokkendur og ég held að þær frönsku séu það líka, hef ekki borið þær saman en held að þær séu mjög svipaðar. Þið getið reiknað með að hver önd sé fyrir tvo en það verða ekki miklir afgangar. Aliendurnar eru ansi vænar (reyndar fást líka íslenskar aliendur sem eru töluvert minni) en þær geta verið dálítið ódrjúgar - ætli 3,5 kg önd dugi þó ekki vel fyrir 6. Hvað á að velja? Það er náttúrlega bara smekksatriði. Litlu endurnar eru trúlega einfaldari í eldamennsku en sú stóra tekur sig náttúrlega flott út á jólaborðinu.
|