Fróðleikur
Forsíða Fróðleikur Nanna Spurt og svarað Kjúklingabringur í salat
Kjúklingabringur í salat

Nánar um fyrirspurnina:

Ég þarf að gera stóran skammt af kjúklingasalati fyrir veislu og ætla að nota kjúklingabringur, svona 3 til 4 kg. Hvernig er einfaldast að elda þær svo að þær verði ekki ofsteiktar og þurrar en samt örugglega eldaðar í gegn? Á ég að steikja þær á pönnu eða í ofni eða kannski bara sjóða þær? salatið er með sýrðum rjóma, mæjónesi, kryddjurtum, selleríi, vínberjum og fleiru.

Fullt svar:

Það er einfaldast að sjóða bringurnar og þá skaltu gera það svona: Kryddaðu þær með pipar og salti. Taktu víðasta pottinn þinn (eða stærstu pönnuna) og raðaðu bringum í hann - ekki fleiri en svo að þær liggi í einföldu lagi. Bættu við vatni þannig að rétt aðeins fljóti yfir, ásamt 1 tsk af kjúklingakrafti, nokkrum timjangreinum (eða 1/2 tsk af þurrkuðu timjani), 1-2 lárviðarlaufum og kannski nokkrum steinseljugreinum. Hitaðu að suðu og settu svo lok á pottinn og lækkaðu hitann þannig að bringurnar rétt aðeins malli í 10-12 mínútur. Taktu þær þá upp úr og settu aðrar bringur í pottinn (bættu við svolitlu vatni og kjúklingakrafti ef þarf).

Svo geturðu líka raðað bringunum í eldfast fat, bætt við (heitu) vatni og kryddi, breitt álpappír yfir og soðið þær í ofni í svona 10 mínútur við 175°C. Báðar aðferðirnar ættu að gefa þér meyran og safaríkan en samt alveg fulleldaðan kjúkling.

Ef þú ert með stórar bringur gætu þær þurft ögn lengri tíma - skerðu kannski í eina þeirra þar sem hún er þykkust til að athuga hvort hún er ekki soðin í gegn.