Fróðleikur
Forsíða Fróðleikur Nanna Spurt og svarað Sósa með skoskum rjúpum
Sósa með skoskum rjúpum

Nánar um fyrirspurnina:

Mig langar að kanna hvort þú lumir á góðri uppskrift að rjúpnasósu þegar verið er að elda skoskar rjúpur. Þ.e. þá vantar auðvitað innyflin og sarpinn. Er eitthvað sem sniðugt er að nota í staðinn?

Fullt svar:

Þú færð náttúrlega aldrei sama bragðið en ef þú ætlar að elda rjúpurnar á hefðbundinn hátt mætti reyna að setja dálítið af villikryddi í pottinn (best náttúrlega ef það er íslenskt villikrydd með blóðbergi og bláberjalyngi) - eða bara timjan og lárviðarlauf - og bæta svo við 5-6 einiberjum og svolitlum villibráðarkrafti - en alls ekki of miklu. Jafnvel nokkrum þurrkuðum villisveppum. Láta þetta sjóða með til að fá bragðmikið soð, ásamt gulrót, sellerístilk og blaðlauk (ef þú ert vön að nota það, annars ekki) og krydda með pipar og salti. Gera svo sósuna á venjulegan hátt.

Ef þú ætlar aftur á móti bara að steikja bringurnar af skosku rjúpunum er um að gera að reyna að fá sem mestan kraft úr beinunum, höggva þau í bita, brúna vel og láta svo malla mjög rólega með grænmeti og kryddjurtum í a.m.k. 1 klst. Þá er þetta síað og síðan sett aftur í pottinn og látið sjóða rösklega niður þar til komið er kraftmikið soð. (Ef þú skyldir eiga þurrkuð eða frosin íslensk bláber er mjög gott að setja svolítið af þeim í sósuna þegar hún er löguð.)

Ég vona að þetta gagnist eitthvað - þótt ekkert komi í staðinn fyrir ekta rjúpnasósu.