Fróðleikur
Soðnar perur

Nánar um fyrirspurnina:

Mig langar að hafa soðnar perur með öndinni um jólin en finn bara uppskriftir að rauðvínssoðnum perum eða soðnum í sykurlegi. Er ekki til einhver ósætur og óáfengur lögur sem hægt er að sjóða þær í eða á ég bara að nota vatn?

Fullt svar:

Ég mundi nota einfaldlega nota perusafa - til dæmis Knudsens perusafa sem fæst í Nóatúni og er ekki með viðbættum sykri og auk þess úr lífrænt ræktuðum perum. Ef þú vilt krydda perurnar geturðu sett hálfa kanelstöng og 2-3 negulnagla með. Svo mundi ég bara flysja perurnar, skera þær í helminga, stinga kjarnann úr þeim og láta þær malla í perusafanum í kannski svona 10 mínútur, eða þar til þær eru farnar að mýkjast en ekki orðnar alveg meyrar. Ef þú vilt geturðu látið safann sjóða rösklega, þegar búið er að taka perurnar upp úr, þar til hann þykknar dálítið og hellt dálitlu af honum yfir þær á diskinum. Oft er sett sulta í svona peruhelminga en ef þú vilt forðast allan sykur er ekki verra að fylla kjarnaholuna með t.d. rifsberjum.