Nánar um fyrirspurnina: Ég er að fara að elda fyrstu jólin mín í Reykjavík, hef alltaf farið út á land en vegna vinnu er ég föst hér og ég ætla að elda Nóatúns hamborgarhrygginn og líst vel á myndbandið góða á síðunni en ég fæ svo mikil mígrenisköst af rauðvini að sósan og glasseringin er ekki að virka. Get ég notað eitthvað annað í staðin eða verð ég að finna aðra uppskrift? Fullt svar: Þú getur vel notað þessa uppskrift með smábreytingum. Í gljáann geturðu notað t.d. dálítið af sólberjasultu og bætt við smávatni til að gljáinn verði ekki of þykkur (en mér finnst reyndar betra að hafa hann þykkari en hann er á myndbandinu). Það er líka hægt að sleppa þessu alveg og sjóða bara saman púðursykur, tómatsósu og sinnep, þynna með smávatni og bera á hrygginn. Eins geturðu vel sleppt rauðvíninu í sósuna en bragðbætt hana í staðinn t.d. með gljáanum sem rennur af hryggnum og safnast fyrir í steikarfatinu – eða notað bara ögn meiri kjötkraft.
|