Nánar um fyrirspurnina: Ég er í vandræðum þar sem ég er búin að glata uppskrift sem ég fékk hjá Nóatúni fyrir þó nokkrum árum. Þetta var uppskrift að rauðrófusalati sem var frábært með hangikjötinu. Þetta var kringlótt spjald sem var afhent í búðunum um hátiðarnar á sínum tíma. Nú er ég ekki að gera ráð fyrir að þú vitir hvaða salat þetta var þ.e. hver uppskriftin er. Þó langar mig til að vita hvort þú gætir gefið mér uppskrift að slíku salati. Ég man að innihaldið var: rauðrófur, epli, vínber, sýrður rjómi og þeyttur rjómi. Man þó ekki hvort það var eitthvað annað, hvað þá hlutföllin. Fullt svar: Ég ætla að athuga hvort rétta uppskriftin finnst ekki hjá Nóatúnsmönnum en hér er ein uppskrift sem ég fann í fórum mínum – hún inniheldur reyndar sellerí og hnetur auk þeirra hráefna sem þú nefndir en það má örugglega sleppa þessu. Rauðrófusalat
150 ml rjómi 100 g (1/2 dós) sýrður rjómi, 18% svolítill sítrónusafi e.t.v örlítill hvítur pipar og salt 150 g rauðrófur, skornar í litla teninga 150 g vínber, steinlaus, skorin í helminga 2 græn epli, afhýdd, kjarnhreinsuð og skorin í teninga 2 sellerístönglar, smátt skornir 50 g valhnetur eða pekanhnetur, grófmuldar Blandaðu saman rjóma og sýrðum rjóma og bragðbættu með sítrónusafa og e.t.v. pipar og salti eftir smekk. Blandaðu rauðrófum, vínberjum, eplum, selleríi og hnetum saman við og bættu e.t.v. svolitlu af leginum úr rauðrófukrukkunni, eftir því hve bleikt þú vilt hafa salatið. Láttu það bíða í kæli nokkra stund, áður en það er borið fram.
|