Kjötborðið Kjötborðið hefur verið í gegnum tíðina ein helsta skrautfjöður okkar. Á löngum og farsælum ferli höfum við þróað fyrsta flokks meðhöndlun og framsetningu á kjötvörum. Okkar verslanir hafa á boðstólum mikið úrval af fersku kjöti sem afgreitt er beint úr kjötborði af valinkunnum fagmönnum. Kjötiðnaðarmenn og matreiðslumenn okkar eru ávallt reiðubúnir að þjóna þér. Ferskur fiskur daglega Á hverjum morgni milli klukkan 7 og 9 afhenda fiskframleiðendur ferskan fisk og sjávarfang í verslanir Nóatúns. Þannig getum við tryggt hámarksferskleika og gæði sem viðskiptavinir okkar geta ávallt treyst. Úrvalið í fiskborðinu er ævintýri líkast. Ýsa, þorskur, stórlúða, smálúða, steinbítur, keila, bleikja, lax, skötuselur og rauðspretta eru meðal tegunda sem daglega eru á boðstólum. Þá er ótrúlegt úrval fiskrétta tilbúinna í ofninn eða pönnuna á 15 mínútum. Það getur verið vandasamt að velja úr þessu mikla og fjölbreytta framboði. Sérfræðingar okkar í fiskborðinu hafa áralanga reynslu af því að finna besta hráefnið og eru alltaf tilbúnir að aðstoða. Ferskir ávextir og grænmeti Við hjá Nóatúni leggum mikla áherslu á að ferskleiki og gæði séu ávallt til staðar í ávaxta- og grænmetisborðum okkar. Á hverjum degi tökum við á móti nýju grænmeti hvaðanæva úr heiminum. Við leggjum mikla áherslu á gott samstarf við íslenska grænmetisbændur og leggjum okkur fram við að tryggja íslenskum neytendum aðgang að innlendri framleiðslu í hvert sinn sem hún er fáanleg. Einnig bjóðum við upp á fjölbreytt úrval af lífrænt ræktuðum ávöxtum og grænmeti. Nýbökuð brauð alla daga Við bjóðum upp á nýbökuð brauð alla daga vikunnar sem bökuð eru á staðnum. Úrvalið er mjög fjölbreytt bæði í brauðum og bakkelsi. Það er einfaldlega ekkert sem jafnast á við nýbakað brauð úr Nóatúni. Heitur tilbúinn matur Í Nóatúni er lögð mikil áhersla á úrval og framsetningu á heitum tilbúnum mat. “Heitt með heim” hefur nú verið sett upp í flestum okkar verslunum. Við bjóðum upp á eldsteiktan kjúkling, fjölbreytt úrval pönnurétta, auk annarra rétta á hverjum degi. Mikið vöruúrval Við hjá Nóatúni kappkostum að bjóða upp á mikið og fjölbreytt úrval af matvöru. Við leggjum okkur fram að finna vörur úr öllum heimshornum og kynna í verslunum okkar. Hver heimsókn á að vera upplifun í hvert sinn sem viðskiptavinur kemur til okkar. Yfir 1500 vöruliðir af lífrænt ræktuðum- og heilsuvörum Ein af áherslum okkar er að hafa mikið úrval af lífrænt ræktuðum vörum sem og heilsuvörum í öllum okkar verslunum. Við bjóðum upp á lífrænt ræktaðar vörur í nánast öllum fæðuflokkum. Allar vörur eru í háum gæðaflokki. Einnig eru lífrænt og vistvænt ræktaðar hreinlætis- og snyrtivörur á boðstólum í verslunum okkar. Gæðaáherslur Nóatúns - Fyrir okkur er góður matur ástríða og við álítum það hlutverk okkar að deila ástríðu okkar með hvert öðru.
- Með metum hverja og eina vöru af kostgæfni áður en hún fer í vöruval verslana okkar.
- Við leggjum sérstaka áherslu á fjögur ferskvörusvið: kjöt, fiskur, ávextir og grænmeti ásamt brauðmeti.
- Við leggjum áherslu á lífrænt ræktaðar vörur og heilsuvörur sem stuðla að bættri heilsu og vellíðan.
- Við kappkostum að leysa allar þarfir okkar viðskiptavina frá degi til dags.
- Allar verslanir okkar vinna skv. HACCP-gæðakerfinu og hafa virkt innra eftirlit.
|