|
Mánudagur, 19. september 2011 14:05 |
|
Nóatún býður nú upp á nýja alhliða veisluþjónustu sem leggur höfuðáherslu á að framleiða aðeins úr besta mögulega hráefni undir áhrifum hvaðanæva úr heiminum. Veisluþjónustan hefur flutt aðsetur sitt í glæsilega veitingaaaðstöðu í Kauptúni í Garðabæ, þar sem aðbúnaður er fyrsta flokks og uppfyllir allar ströngustu kröfur sem gerðar eru til matvælaframleiðslu.
Við kynnum nú til leiks fyrstu nýjungarnar í þjónustuframboði veisluþjónustunnar, glæsilegar tækifærisveislur sem einungis eru framleiddar úr fyrsta flokks hráefni. Við bjóðum nú ítalskar-, mexíkanskar-, spænskar- og austurlenskar smáréttaveislur, safaríkar sushiveislur, brauðsnittur, smurbrauðstertur og síðast en ekki síst brúðkaupsveislur. Að auki bjóðum við upp á borðbúnaðarleigu fyrir viðskiptavini okkar. Á næstu vikum munum við svo birta matseðla okkar fyrir jólahlaðborðin auk annarra þjónustulausna.
Pantað er í gegnum heimasíðu veisluþjónustunnar, á www.noatun.is, þar sem allar upplýsingar er jafnframt að finna. Veisluföngum er dreift beint til viðskiptavina frá veisluþjónustu okkar, án viðkomu í verslunum.
Fyrirspurnir um veisluþjónustuna má senda á netfangið
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
eða fá samband við veisluþjónustu Nóatúns í síma 585-7000 milli kl 9 og 17 alla virka daga.
|