Um Nóatún
Forsíða Um Nóatún Fréttir Breyttur opnunartími verslana Nóatúns
Breyttur opnunartími verslana Nóatúns
Miðvikudagur, 01. febrúar 2012 00:00

Breyttur opnunartími verslana Nóatúns: 08:00 – miðnættis

Frá og með 1. febrúar verður opnunartími allra verslana Nóatúns frá klukkan 08:00 til miðnættis alla daga vikunnar.   Við opnun verslana kl 8 alla daga munum við bjóða upp á nýbökuð brauð og bakkelsi, en bakstur hefst kl 07:00 alla daga.  Verslanirnar verða opnar til miðnættis og því má segja að við höfum opið lungann af sólarhringnum. 

Launakostnaður hefur aukist til muna vegna nýrra kjarasamninga frá því að ákvörðun um næturopnun var tekin  auk þess sem frekari hækkanir eru framundan sem snúa að vinnutíma að næturlagi.   Ákvörðun Nóatúns um að ráðast í sólarhringsopnun í marsmánuði 2010 byggðist á þeirri meginforsendu að hinn langi opnunartími leiddi ekki til verðlagshækkana  fyrir viðskiptavini Nóatúns.  Sú forsenda hefur haldið hingað til, en vegna þeirra kostnaðarhækkana sem eru í farvatninu teljum við okkur ekki annað fært en að bregðast við með þessum hætti, því það kemur ekki til greina að velta auknum kostnaði yfir á neytendur í formi hærra vöruverðs.