Ráðningar -
Við leggjum okkur ávallt fram um að ráða hæfa einstaklinga til starfa og metum umsóknir óháð kynferði og uppruna. -
Við semjum um vinnutíma með því markmiði að starfsfólk geti samræmt vinnu og fjölskyldulíf. -
Við gerum starfssamninga við allt nýtt starfsfólk og kynnum þeim starfslýsingu fyrir þeirra starf. -
Við kynnum nýju starfsfólki fyrirtækið og sameiginleg markmið. Starfsþróun -
Við veitum öllu starfsfólki óháð kynferði og uppruna tækifæri til þess að eflast og þróast í starfi. -
Við styrkjum starfsfólk til náms tengdu verslun og þjónustu og bjóðum upp á fjölbreytt námskeið. -
Við leggjum mikla áherslu á allt starfsfólk hafi jafna möguleika óháð kynferði og uppruna á stöðuhækkunum. Liðsheild Upplýsingaflæði -
Við leggjum mikla áherslu á að allt starfsfólk miðli upplýsingum sín á milli. -
Við notum innri vefinn til að birta fréttir og fróðleik. -
Við notum upplýsingatöflur og reglulega starfsmannafundi til að miðla upplýsingum. Hvatning -
Við veljum mánaðarlega verslun mánaðarins í hverri keðju fyrir sig út frá mælikvörðum um sölu, útlit og þjónustu verslunar. -
Við viðurkennum á árshátið verslun ársins í hverri keðju fyrir sig. -
Við veitum árlega viðurkenningu traustu starfsfólki okkar með langan starfsaldur. -
Við hvetjum starfsfólk til heilsusamlegra lífshátta með árlegum heilsuræktarstyrk. Starfsánægja -
Við sköpum starfsfólki starfsumhverfi þar sem öllum getur liðið vel við dagleg störf og einelti og kynferðisleg áreitni er ekki liðin. -
Við erum samábyrg fyrir því að starfsandi sé góður og samskipti séu opin og heiðarleg. -
Við fylgjumst náið með starfsánægju starfsfólks með reglulegum vinnustaðakönnunum, mælingum á starfsmannaveltu og starfsmannasamtölum.
|