Leiðbeiningar:
Afhýðið perurnar og sjóðið í rauðvíninu ásamt berkinum af einni appelsínu og helmingnum af sykrinum. Afhýðið hina appelsínuna, léttsjóðið börkinn af henni og kælið strax aftur. Skerið krónhjartarlundirnar í 8 steikur og kryddið með salti og pipar. Steikið upp úr 50 g af smjöri í 4–6 mínútur á hvorri hlið. Látið kjötið standa í 5 mínútur og jafna sig. Skerið eplin í litla teninga og sjóðið í eina mínútu í vatni og sírópi.Skerið vínberin í fernt og takið steinana úr þeim. Hitið vínberin upp í einni tsk. af sírópi og bætið þeim svo við trönuberin. Hellið steikarskófinni af pönnunni í skál. Setjið restina af sykrinum á pönnuna og brúnið hann aðeins. Skerið appelsínurnar í bita og bætið út í ásamt ediki, kjötsafanum og cumberlandsósunni. Sjóðið í 2–3 mínútur. Sigtið og bætið engiferinu í og saltið. Hrærið restinni af smjörinu saman við. Bætið loks appelsínuberkinum út í. Blandið saman vínberjum, eplum og trönuberjum og berið fram ásamt perunum.
Hráefni:
800 g krónhjartarlund 500 ml rauðvín 2 appelsínur 4 perur 2 epli 200 g vínber 50 trönuber, þurrkuð 20 g malað engifer 50 ml hvítvínsedik 100 ml cumberlandsósa 100 g smjör 40 g sykur hlynsíróp sjávarsalt og nýmalaður pipar
|