Leiðbeiningar:
Hitið ofninn í 180 °C. Bræðið saman smjör og súkkulaði í skál yfir vatnsbaði, takið blönduna af hitanum og bætið sykri og hveiti við. Hrærið eggjarauðunum út í einni í einu, stífþeytið eggjahvíturnar og blandið þeim síðan varlega saman við. Hellið blöndunni í form sem er 24 cm í þvermál og bakið í 30 mínútur. Berið kökuna fram volga.
Hráefni:
210 g smjör 200 g súkkulaði (56 eða 70%) 2 dl sykur 2 msk hveiti 5 egg, aðskilin
|