Leiðbeiningar:
Botn Stífþeytið eggjahvítur og sykur og bætið svo rice krispies út í. Setjið í tvö 24 cm smelluform og bakið við 150 gráður í 45–60 mínútur, miðað við blástursofn. Bræðið súkkulaðið og smjörið saman í vatnsbaði (líka hægt að bræða það saman í potti). Hrærið eggjum og flórsykri mjög vel saman.Hellið síðan súkkulaðismjörblöndunni varlega saman við eggin og flórsykurinn. Hrærið vel saman. Þeytið 1½–2 pela af rjóma. Leggið annan botninn á tertudisk, smyrjið helmingnum af kreminu á hann og síðan rjómanum, leggið efri botninn ofan á og þrýstið létt saman. Smyrjið afgangnum af kreminu yfir. Best er að láta kökuna standa yfir nótt í ísskáp áður en hún er borin fram.
Hráefni:
Botn 4 eggjahvítur 200 g sykur 2 bollar (ca 50 g) rice krispies
Krem 100 g Opal appelsínusúkkulaði 50 g smjör 4 eggjarauður 60 g flórsykur
|