Uppskriftir
Forsíða Uppskriftir
Ris á l’amande

Ris á l’amande
Leiðbeiningar:
Sjóðið grjón í vatni í 2–4 mínútur, hellið á sigti og skolið vel, setjið síðan aftur yfir til suðu í mjólkinni ásamt sykri og vanillustöng. Sjóðið við vægan hita í 45 mínútur og hrærið oft í svo ekki brenni við. Kælið grjónin alveg og hrærið svo varlega saman við rjómann og möndlurnar. Berið fram með kirsuberjasósu.

Hráefni:

200 g grautargrjón
4 dl vatn
1 l mjólk
1 vanillustöng
100 g sykur (t.d. hrásykur)
200 g möndlur, saxaðar
5 dl þeyttur rjómi