Leiðbeiningar:
Skolið rauðbeðurnar undir köldu vatni og maukið í matvinnsluvél ásamt rauðlauk og hangikjöti. Passið samt að mauka ekki of mikið. Það er gott að skera laukinn og hangikjötið í litla bita áður en það er sett í vélina. Hrærið saman öllu sem á að fara í sósuna og geymið í kæli í eina klukkustund. Smyrjið piparrótarsósunni yfir rúgbrauðið og skerið rúgbrauðið með útstungujárni eða glasi. Setjið hangikjötsmaukið ofan á brauðið og fromið í fallega toppa. Skreytið með sósu og ferskri steinselju.
Hráefni:
200 g hrátt hangikjöt (hreinn vöðvi skorinn í bita) 1 rauðlaukur, skorinn í bita 100 g rauðbeður 4 sneiðar rúgbrauð fersk steinselja
Piparrótarrjómi 100 ml sýrður rjómi 18% 50 ml majónes ¹⁄³ bréf rifin piparrót salt og pipar eftir smekk
|