Uppskriftir
Forsíða Uppskriftir
Saltfisktartar

Saltfisktartar
Leiðbeiningar:
Blandið saman tómatsósu, balsamikediki og olíu og kryddið
með pipar.
Saxið rauðlaukinn, paprikuna, grænu ólífurnar og steinseljuna smátt.Saxið þá saltfiskinn og blandið honum saman við grænmetið og kryddið með salti og pipar.
Hellið þá sósunni yfir og látið standa í eina klukkustund. Mótið tartar með útstungujárni eða glasi og berið fram með ristuðu brauði.

Hráefni:

300 g saltfiskur, útvatnaður, beinlaus og roðlaus
½ dl tómatsósa úr dós
½ dl jómfrúarolía
¼ dl balsamikedik
½ dl grilluð paprika í krukku
½ dl sólþurrkaðir tómatar
1 rauðlaukur
½ rauð paprika
100 g grænar ólífur
½ dl steinselja
svartur pipar og salt